innanhússhönnun
Með skapandi hugsun er hægt að finna leiðir til þess að auka vellíðan fólks og efla samfélög. Ég hanna rými sem stuðla að tengslum milli fólks og trúi því að samfélagslegur ávinningur góðrar hönnunar sé ómetanlegur, hvort sem það er innan veggja heimilisins eða í almenningsrými.
R30 // 1955
Heildarhönnun
Félagsskapur
Leikmyndarhönnun
B30
Heildarhönnun (væntanlegt)
Þjónu
stulei
ðir
Innanhússrágðjöf
Ein heimsókn í allt að tvær klukkustundir og tveggja vikna eftirfylgni. Til þess að sem mest fáist út úr heimsókninni er best að verkkaupi sendi myndir og upplýsingar um væntingar fyrir heimsóknina. Ef innanhússráðgjöf leiðir af sér heildarhönnun (t.d. á eldhúsi eða baðherbergi) þá gengur sú upphæð sem greidd er fyrir innanhússráðgjöfina upp í þann kostnað.
Heildarhönnun
Heildarhönnun á einu eða fleiri rýmum, t.d. á eldhúsi, baðherbergi eða þvottahúsi, felur í sér skipulag, hönnun, teikningar, lita- og efnisval eða öðru sem óskað er eftir. Skiptist ferlið almennt upp í þrjá fasa.
Tillögur
Tillögur
Fundir og samtöl
Teikningar
Málsettar teikningar með lita-, efnis- og tækjavali ásamt lýsingu
Tilboðsöflun frá söluaðilum á arkitektakjörum
Eftirfylgni
Samskipti við verktaka
Heimsóknir á verkstað
Fyrsta heimsókn er endurgjaldslaus, en ekki er gefin innanhússráðgjöf í þeirri heimsókn. Eftir fyrstu heimsókn er stærð og umfang verks metið og gert tilboð í verkið skv. verðskrá.
Innanhússhönnun fyrir fyrirtæki
Helstu þjónustuleiðirnar fyrir fyrirtæki eru tvær.
Annars vegar er það almenn innanhússhönnun þar sem leitast er við að hönnunin samræmist núverandi ásýnd, gildum og framtíðarsýn fyrirtækis. Sú þjónustuleið hentar vel fyrirtækjum með skýra sýn og stefnu.
Hins vegar er það heildarhönnun á ásýnd fyrirtækis sem hentar vel startup fyrirtækjum eða þeim fyrirtækjum sem þurfa að skýra sína sýn og móta skýrari stefnu. Þá sér hönnuður um að aðstoða fyrirtækin við vörumerkjaþróun og að móta heildarásýnd sem endurspeglast í öllum hliðum hönnunar, t.d. vefsíðuhönnun, innanhússhönnun, allri grafík og auglýsingum.
Ferlið fer eftir stærð og umfangi verks.
Fyrsti fundur er endurgjaldslaus, en ekki er gefin innanhússráðgjöf á þeim fundi. Eftir fyrsta fund er stærð og umfang verks metið og gert tilboð í verkið skv. verðskrá.
