Verk mín snúast um að skapa heimili og almenningsrými sem bjóða upp á samtöl, sameiginlegar venjur og hversdagslega samveru. Ég notast við Design Thinking aðferðarfræði og vinn þannig á mörkum innanhússhönnunar, nýsköpunar og umhverfissálfræði.

Nálgun mín er heildræn þar sem ég vinn með rými, ímynd og upplifun út frá samfélagslegum og sjálfbærum gildum. Með hönnun minni vil ég leggja mitt að mörkum til þess að efla samfélög, draga úr einmanaleika, styrkja tengsl milli kynslóða og stuðla að fjölskylduvænni samfélögum.

Árið 2020 útskrifaðist ég sem innanhússarkitekt frá Istituto Europeo di Design í Mílanó. Eftir það starfaði ég í tvö ár hjá Arkís Arkitektum, en hef síðan starfað á eigin hönnunarstofu við hin ýmsu verk. Ég hef sótt fjölda námskeiða í tengslum við umhverfissálfræði, samfélagslega hönnun og hringrásarhagkerfið.